Sara Dís Art
Sara Dís
Ég heiti Sara Dís Davíðsdóttir og er listamaðurinn á bakvið þessi verk.
Ég hef alltaf haft áhuga á litum og sköpun og mér finnst best þegar ég get gleymt mér í ferlinu og leyft verkinu að þróast. Ég vinn aðallega með acrylic, sparsl og epoxy resin og elska að búa til verk sem hafa áferð, dýpt og rólega orku.
Öll málverkin sem ég sel eru unnin með langtíma endingu í huga. Ég grunna alltaf hvert málverk og set varnisher eftirá til að vernda litina og yfirborðið.
Með þessari meðhöndlun geta málverkin enst í um 25-100+ár við eðlilegar inniaðstæður, samanborið við um 2-10 ár ef hvorugt er notað. Þessi vinnubrögð hjálpa við að vernda gegn rispum og núningi, verndar gegn óhreinindum, ryki og fitu (t.d. fingraför), UV vörn og oft auðveldara að þrífa lakkað verk (mjúklega).

Hér á síðunni finnur þú verk sem eru til sölu, einnig tek ég að mér sérpantanir ef þú vilt mynd í ákveðnum litum og stærð.
Verð á verkum fer eftir stærð, efnisvali og vinnu. Verk sem innihalda epoxy resin eru almennt verðlögð hærra þar sem það er dýrara efni og krefst meiri vinnu og nákvæmni.
Endilega sendu mér DM (einkaskilaboð) á instargram síðunni minni ef þú vilt kaupa verk eða fá nánari upplýsingar.
instagram: saradisart1


